top of page
quick check (820 x 550 px).png

Næringarathugun á hráfæði

Að fæða hundinn þinn á hráfæði er frábær leið til að styðja við heilsu hans, en það getur verið áskorun að tryggja að máltíðirnar séu næringarréttar og í jafnvægi.

Ef þú ert þegar að gefa hráfæði og vilt fá leiðsögn um hvort hundurinn þinn sé að fá rétta og/eða nægilega næringu, þá er þessi þjónusta fyrir þig.

Athugið: Þessi þjónusta felur í sér greiningu á núverandi hráfæðismataræði hundsins þíns, en innifelur ekki breytingar, endurskoðað fæðuplan eða nýjar máltíðartillögur.

Ef breytingar eru nauðsynlegar get ég að sjálfsögðu leiðbeint þér um næstu skref.

Ein skoðun/athugun í senn

Fyrir hvern er þetta?

  • Hvern sem er – bæði reynda og nýja hráfæðisgjafa – sem vilja tryggja að hráfæðismáltíðir hundsins þeirra séu sannarlega í jafnvægi.

Hvað er innifalið?

  • Yfirferð á núverandi hráfæðismataræði hundsins þíns

  • Mat á lykilnæringarefnum

  • Upplýsingar um möguleg skortseinkenni eða ofgnótt

  • Hugarró og öryggi um að mataræðið styðji við heilsu hundsins þíns

6.900 ISK

(47 EUR/49 USD)

bottom of page